Samsett ræða
Árni Svanur @ 19.02 13/5/08
Mary Hess vísar á myndband á YouTube sem miðlar ræðu sem Obama flutti gegn Íraksstríðinu. Myndbandsupptaka af ræðunni allri er ekki aðgengileg á netinu svo þessi útgáfa var sett saman. Hún hefst á flutningi Obama og sýnir svo stuðningsmenn hans flytja hluta ræðunnar. Samsetningin er flott og hugmyndin snjöll. Það mætti gera meira af þessu.
Torfi Stefánsson @ 16/5/2008 10.00
Tja, ekki var þetta neitt mjög sannfærandi hjá Obama. Í ljósi þess að öldungadeild Banadríkjaþings var að samþykkja brottkvaðningu alls herafla landsins frá Írak fyrir lok næsta árs – og byrja brottkvaðninguna þegar í næsta mánuði, þá finnst mér gagnrýni Obama á Írakstríðið ósköp slöpp.
Ég vil, heyra miklu ákveðnari rödd í þessu máli sem ætti ekki að vera mikið mál fyrst þingmenn Demókrata leggja svona mikinn metnað í að berjast gegn hernáminu í Írak. Obama er þannig ekki eins róttækur og menn vilja vera láta – eins og reyndar kom fram í gagnrýni hans á prestinn sinn. Hægri öflunum tekst greininlega að þvinga hann til linkulegra viðbragða.
Það er hins vegar spurning við hvað Obama er hræddur. Hann þarf varla að óttast almenningsálitið og alls ekki Hollywood.
Ég sá mynd Brian De Parma, Redacted, í gær. Það er sterk mynd sem ég hvet alla, sem láta sér mannréttindi varða, að sjá. Hún er líka gerð á þann hátt að áhorfandinn finnst hann vera að horfa á raunverulega atburði en ekki sviðsetta, að hann sé að horfa á hlutina gerast (í beinni útsendingu). Þetta gerir myndina mjög sterka sem og leikararnir sem allir eru óþekktir. Með þessari aðferð, og með leikaravalinu, tekst leikstjóranum að komast hjá því, sem er einhver helst galli kvikmyndarinnar sem slíkrar, að áhorfandinn sé meðvitaður um að þetta sé bara bíómynd.
Næst á dagskránni er að sjá In the walley of Elah. Vonandi hætta þeir ekki strax að sýna hana …