Ekki-kaupa-jólin
Árni Svanur @ 19.20 5/12/07
Scott Berkun fylgir tveimur jólagjafareglum í ár.
« Nói og frú eru í uppáhaldi · Heim · Piparkökuskreytingar »
url: http://arni.annall.is/2007-12-05/ekki-kaupa-jolin/
Fjöldi 2, nýjasta neðst
Árni Svanur @ 6/12/2007 22.00
Takk fyrir þetta innlegg Torfi. Það væri gaman að safna saman svona hugmyndir um gjafir sem gagnast öðrum. Hjálparstarfið opnaði líka nýlega vef sem gefur virkað í þessum tilgangi: Gjöf sem gefur.
Torfi Stefánsson @ 6/12/2007 21.50
Ég vil endilega leyfa ykkur að njóta tölvupósts sem barst inn á akademia.is rétt í þessu:
Kæru viðtakendur
Ég fékk jólagjöf frá aldraðri vinkonu minni í Noregi sem mig langar að deila með ykkur.
Hún hringdi í mig og bað mig um að hugleiða ofátið og oflætið, hræsnina og sóunina sem nær hámarki á þessum tíma árs hjá okkur, fólkinu á TOPPNUM. Einnig það; að sitja í toppsæti felur í sér að öðrum er skipað í botnsætið. Hún bað mig um að hugleiða samhengið… og hvort ég sjái leið í ysi mínu og þysi til að gjalda skuld mína við fólkið á botninum. Hún sagði LÆKNA ÁN LANDAMÆRA (http://www.msf.org )vera tilbúna til að aðstoða mig við stuðninginn og reyndar fleiri. – Að lokum bað hún mig að færa sér það að gjöf að ég léti jólagjöf þessa ganga áfram til 2-3ja af mínum vinum.
Fleira var það ekki að sinni… nema e.t.v. nokkur heilræði frá Vistvernd í verki (http://landvernd.is/frettirpage.asp?ID=2223 ) um vistvæn jól.