Kid Svensk hlýtur kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar
Árni Svanur @ 11.33 4/2/07
Í gærkvöldi var tilkynnt að hlýtur sænska kvikmyndin Kid Svensk hlýtur kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar í ár. Í umsögn dómnefndar sagði meðal annars að myndin væri:
en stark och inkännande barndomsskildring förlagd i 80-talets Sverige, som har stor aktualitet i dagens multietniska verklighet.
Kid Svensk var ein af átta kvikmyndum sem kepptu um þessi verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg. Myndin var sýnd í flokkinum Nordisk tävling, en þær myndir kepptu einnig um aðalverðlaun hátíðarinnar, kvikmyndatökuverðlaun og Fipresci-gagnrýndaverðlaun.
Það var óvenju mikil dreifing á verðlaunum þetta árið, aðalverðlaunin komu í hlut kvikmyndarinnar Darling, Kunsten at græde i kor fékk verðlaun fyrir kvikmyndatöku og Den brysomme mannen fékk Fipresci-verðlaunin. Síðastnefndu myndina gaf Keli mér á dögunum, ég læt líklega verða af því að horfa á hana fljótlega.
Í dómnefnd vegna kirkjuverðlaunanna voru Mikael Ringlander, Gunnar Bergdahl, Anne-Louise Eriksson og Kim Skjoldager Nielsen.