Doktorsvörn Sigurjóns Árna Eyjólfssonar
Árni Svanur @ 18.07 16/3/02
Laugardaginn 16. mars 2002 fór fram doktorsvörn við guðfræðideild Háskóla Íslands. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson varði þar ritgerð sína Guðfræði Marteins Lúthers. Þessar myndir voru teknar við það tækifæri.

Mynd 1: Deildarforseti guðfræðideildar fer þarna í fylkingarbroddi ásamt vararektor Háskólans. Doktorsefnið gengur milli þeirra og andmælendanna tveggja. Takið eftir skemmtilegum höfuðbúnaði og því hvað menn eru glaðlegir. Hátíð er í vændum.

Mynd 2: Doktorsefnið horfir til himins í undirbúningi fyrir það sem í vændum er. Skyldi hann vera að hugsa til Lúthers?

Mynd 3: Dr. Sigurjón Árni steig fyrstur í pontu eftir að deildarforseti, dr. Gunnlaugur A. Jónsson, hafði sett athöfnina. Sigurjón kynnti ritgerðina stuttlega og dró fram helstu áhersluþætti í verkinu.

Mynd 4: Fyrsti andmælandi er stiginn á stokk. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, sem var afar póetískur, hóf mál sitt á því að ræða um fjallið mikla, Herðubreið, og benti á vissa samsvörun milli þess og ritgerðar Sigurjóns Árna.

Mynd 5: Fyrri andmælandinn er greinilega nýbúinn að segja brandara, deildarforseti og doktorsefni kíma og brosa út í annað.

Mynd 6: Eftir að fyrri andmælandi hafði lokið máli sínu þurfti doktorsefnið að svara fyrir sig.

Mynd 7: Og þá var röðin komin að síðari andmælandanum, dr. Hjalta Hugasyni. Sjáið hvað Sigurjón Árni er þungt hugsi.

Mynd 8: Sigurjón er greinilega búinn að finna svarið við þessari spurningu Hjalta (sjá mynd 7), en hann er samt ennþá að hugsa. Deildarforseti horfir til himins í djúpum þönkum.